Sent af admin í Blogg
Þá er þessi ferð að enda. Þetta er búið að vera mjög áhugaverð og skemmtileg ferð. Margir nýir hlutir hafa fyrir augu borið og margt skrítið. Þetta er lífsreynsla sem við hefðum ekki viljað missa af. Allt hefur gengið eins og í sögu og sagan ætlar að enda með svakalegu húllumhæi á Miklagarðsbryggjunni á morgun. Það er mikil tilhlökkun að hitta fjölskyldurnar okkar. Nú er búið að slá af en áætlaður komutími er um hádegisbil.
Við viljum koma þökkum til þeirra sem hafa aðstoðað okkur í ferðinni. En þeir eru fjölmargir og verða þeir ekki taldir upp hér nema að við verðum að þakka Garðari Garðasyni sérstaklega fyrir hans framlag.
Nú er komið að leiðarlokum og það hefur verið gaman að lesa það sem þið hafið skrifa í kommentin. Þess var alltaf beðið með mikilli eftirvæntingu að fá bréfið með kommentunum.
Heiðar takk kærlega fyrir að hjálpa okkur með heimasíðuna. Þú ert besti vefþjónn í heimi.
Staður 62.09.00 N 014.23.00 W
Hraði 10.6 sm.
Stefna 348°
Hiti 17°
Sjávarhiti 12.4°
Farnar mílur 10.437 sm.
Ófarnar mílur 126 sm.
Takk fyrir okkur og vonandi höfðuð þið jafn gaman að þessu og við.
Kveðja
Friðrik Þór Ingvaldsson
5 Athugasemdir »
Sent af admin í Blogg
Nýsmíðin Þórir SF-77 kemur til heimahafnar þriðjudaginn 30. júní. Búist er við Þóri um hádegisbilið eftir 6 vikna siglingu frá Taiwan.
Í tilefni af heimkomu Þóris munu skip fyrirtækisins taka á móti honum fyrir utan Hornafjarðarós og fylgja honum síðasta spölinn inn til hafnar.
Við fögnum þessum gleðiáfanga í endurnýjun skipastóls fyrirtækisins með því að hafa skip okkar opin til sýnis fyrir almenning eftir kl. 15:00. Boðið verður upp á léttar veitingar og fiskrétti úr framleiðslu okkar frá kl. 15:00 – 18:00 á Miklagarðsbryggju.
Við vonumst til að sem flestir sjái sér fært að mæta til að gleðjast með okkur þennan dag.
Ein athugasemd »
Sent af admin í Blogg
Þetta er bara allt að hafast. Óbúlegt hvað tíminn flýgur. Dagurinn í dag fór í þrif eins og síðustu dagar hafa gert. Ekki það að skipið hafi verið haugdrullugt heldur að það er bara svo gaman að þrífa. Jói hefur verið að dunda við að búa til myndasýningu fyrir heimkomuna og aldrei þessu vant tókst honum ekki að klúðra myndatilfærslu fyrir Sjonna kallinum. En eins og áður hefur komið fram þá hefur hann tínt myndum áður fyrir Lónmanninum. Við mikla hrifningu viðkomandi, eða ekki.
Hér hefur Atlandshafið tekið einkarvel á móti okkur. Við höfum haft meðbyr nær alla leið frá því í Gíbraltarsundi. Gott veður þó svo að þokan hafi rétt í þessu skollið á okkur af miklum þunga nú rétt í þessu. Það er bara notalegt að sjá þokuna aftur eftir þessar sólríku stundir sem við höfum upplifað síðustu daga og vikur.
Magndís Lóa! Til hamingju með afmælið.
Staður 57.52.00 N – 013.08.00 W
Hraði 10.9 sm.
Stefna 252°
Hiti 14°
Sjávarhiti 13.5°
Farnar mílur 10.175 sm.
Ófarnar mílur 385 sm. Sem er bara ekki neitt!
Tími 19.40
Kveðja.
FÞI
Ein athugasemd »
Sent af admin í Blogg
Þá er það ákveðið. Við verðum í heimahöfn þann 30. júní klukkan 12 á hádegi. Það stendur mikið til . Allir bátar fyrirtækisins ætla að fylgja okkur inn. Við reiknum með að tollskoðun taki tvær klukkustundir og þar á eftir verður báturinn til sýnis. Einhver önnur dagskrá verður en það verður auglýst síðar ef það er ekki búið nú þegar. Við vonumst til að sjá sem flesta við heimkomuna.
Það hefur verið frekar rólegur dagur hjá okkur í dag. Tíu máfar litu við og náðu að drulla aðeins á nýþrifinn bátinn. Það kostar það að taka verður upp Möltu sjampóið aftur. Það er kominn hellings spenna í okkur. Það verður ekki lítið gaman að hitta fjölskylduna eftir 49 daga í hafi og eina 8 daga þar á undan í Taiwan. Við erum satt best að segja að farast úr spenningi.
Það eru alltaf einhver afmæli í minn fjölskyldu á þessum tíma. Nú á litla prinsessan mín hún Emma afmæli í dag og þar sem ég á ekki vona á því að heyra í henni í dag vegna þess að hún er að koma frá Spáni langar mig til að koma til hennar ástarkveðju frá pabba. Afi biður líka fyrir kveðju til þín.
Staður 53.36.00 N 012.05.00 W
Hraði 11 sm.
Stefna 353°
Hiti 18°
Sjávarhiti 15.9°
Farnar mílur 9917sm.
Ófarnar mílur 643 sm.
Tími 19:40
Kveðja.
FÞI
Ein athugasemd »
Sent af admin í Blogg
Jæja þá eru rúmir 3 sólahringar eftir. Það hefur gengið mjög vel síðustu sólahringa. Dagurinn hefur farið í að skrúbba skipið með Möltu sjampói. Það gekk nú svona og svona. En eitthvað náðist nú af þó svo að það hefði mátt vera meiri árangur. Það hefði þurft að bletta aðeins en það verður beðið með það þar til að Jón Þorbjörn kemur um borð. Hann er einn besti málari sem um getur, enda á hann ættir til. Það hefur verið dandalablíða í dag og strauma hafa verið okkur hliðhollir. Höfum varla séð undir 10 mílna ferð síðasta sólahringinn. Næstu dagar fara í það að þrífa Tævuna en hún verður til brúks fyrir hvern sem er þegar við komum. Það fá allir að fara í hana nema Stjáni Hauks. og þeir sem ekki renna fingrum sínum í gegnum lubbann á Sjonna. Hann er yfirsundlaugarvörður og gott ef hann verði ekki ráðinn í Sundlaug Hafnar þegar sjómannsferlinum líkur. En það eru væntanlega nokkur ár í það svo þeir í sundlauginni heima geta verið rólegir um sinn.
Hér gerðust undur og stórmerki í dag. Við náðum gervihnettinum inn og nú er slegist um það hvaða rás á að horfa á. Jói vinnur alla þá bardaga og horfir nú stíft á minningarþætti um Mikhael Jackson. Svo dolfallinn er hann að hann festir varla svefn.
Takk fyrir allar kveðjurnar í gær. Það er bara notalegt að fá kveðjur frá ykkur. Takk takk.
Staður 49.23.00 N 011.17.00 W
Hraði 11.1 sm.
Stefna 354°
Hiti 19°
Sjávarhiti 15.6°
Farnar mílur 9662 sm.
Ófarnar mílur 900 sm.
Kveðja.
FÞI
Ein athugasemd »
Sent af admin í Blogg
Það hefur verið mikið um veisluhöld í dag. Kokkur í klæðum átti afmæli og haldið var upp á afmæli Sjonna í leiðinni þar sem hann fékk bara gúllas í matinn á sínum degi. En það var meira honum að kenna en öðrum því hann lét ekki rétt yfirvöld vita af deginum fyrr en samdægurs. En þá var kokkurinn búinn að gera ráð fyrir matarföngum þann daginn. Hátíðarhöldin hófust á því að Jói hafði skipti við kokkinn og slóg í brauðtertur með túnfisk-og kræklingasalati og það var etið með góðri lyst. Þá leið ekki á löngu þar til kokkurinn kom með stóra gúllasið (nautafille) og það var kryddað af hjartans list með svörum pipar og látið standa í dulitla stund. Síðan var því hent inn í ofninn góða og hann sá um rest. Þvílík máltíð þó ég segi sjálfur frá. Ég hef ekki talað um það hér, en öll kjötvara var versluð í Taiwan og betra hráefni er vandfundið! Allt svo meyrt og gott. Það hefur ekki klikkað einn einasti kjötbiti. Og ekki eru græjurnar í eldhúsinu til þess að eyðileggja herlegheitin. Og hvað þá kokkurinn!!!!!!!!! Það eru að vísu kannski ekki allir á þessu síðast nefnda.
Það er gaman að vita að þeir Helgu menn eru að komast af stað. Gangi ykkur allt í haginn og góða skemmtun.
Nú segir Maxsea-inn að við séum ca. sólahring á undan okkar áætlun þ.e. að við verðum heima þann 30.júní en það getur margt breyst á þen 4-5 sólahringum sem eftir eru. Það hefur verið ágætis gangur en við siglum nú í Atlandshafinu og það getur verið duttlungafullt og því verður ekki gefinn út tíma alveg strax.
Staður 45.16.00 N 010.44.00 W
Hraði 10.3 sm.
Stefna 355°
Hiti 17°
Sjávarhiti 17.3°
Farnar mílur 9413 sm.
Ófarnar mílur 1148 sm.
Tími 20:04
Kveðja.
FÞI
2 Athugasemdir »
Sent af admin í Blogg
Það er blíðu veður og góður gangur. Við þrifum lítillega í dag en sápan sem við fengum á Möltu er óttalegt barnasjampó og vinnu því lítið sem ekkert á drullunni. Þeir þurfa líklega ekki að þrífa bátana sína þarna á Möltu enda ekki svo mikið sem þeir skíta sína báta út. Kannski að Össur hafi fundið þetta út í heimsókn sinni þar um daginn. Blessaður karlinn.
Við nálgumst nú óðfluga landið okkar fagra. Það er komin tilhlökkun í mannskapinn.
Sjonna hlakkar alveg ógurlega til Þjóðakvöldsins hjá kvennakórnum en er þó með smá kvíða fyrir því að hann fái ekki frið með englahárið. Enda búið að auglýsa það vel hversu gott er að handfjatla lubbann. Lubban segi ég og skrifa. Þetta er sá haus sem helst ætti að klippa. En það má víst ekki.
Tævan var brúkuð í dag þó svo að hitinn í henni hafi ekki verið til að hrópa húrra fyrir. Aðeins 19° þegar sett var í hana. Sjonni á metið hvað sundferðir snertir. Hann hefur dýft sér í öll þau höf sem við höfum lagt leið okkar um. Hann fær að launum einn bjór í boði kvennakórsins.
Staður 41.02.00 N 010.04.00 W
Hraði 10.5sm.
Stefna 355°
Hiti 21°
Sjávarhiti 18.8°
Farnar mílur 9158 sm.
Matur: rjómalöguð blómkálsúpa og fyllt brauð.
Kveðja til allra.
FÞI
15 Athugasemdir »
Sent af admin í Blogg
Þá siglum við í Atlantshafinu rétt fyrir utan Albufeira. Það hefur skánað gangurinn. Meðalhraðinn bara uppá við. Það hafa margir verið að grennslast fyrir um komutíma okkar. Hann er áætlaður 1. júlí ef allt gengur eins og það á að ganga. Nánari tímasetningu er ekki hægt að gefa fyrr en nær dregur. Nú eru eftir 1688 sm. en síðasti sólahringur gekk frekar rólega fyrir sig. Það er smá vinnukaldi í hafi en það truflar okkur ekkert. Hitinn hefur farið lækkandi dag frá degi. Svo kalt var í messanum að kokkur án klæða þurfti að klæðast síðbuxum og bol. Það var hálf skrýtin sjón því hann hefur einungis klæðst naríum allan þennan tíma. Þó ekki þeim sömu.
Kári Söl. Til hamingju með daginn.
Staður 36.44.00 N 008.49.00 W
Hraði 9.4 sm.
Stefna 277°
Hiti 22°
Sjávarhiti 20°
Farnar mílur 8879 sm.
Biðjum að heilsa heim og guð blessi kónginn.
FÞI
4 Athugasemdir »
Sent af admin í Blogg
Hér er hæglætis veður sól og blíða í allan dag en sterkur mótstraumur sem hefur verið að tefja för okkar óþyrmilega. Hraðinn hefur farið niður í 6.2 sm. og það er að mínu mati frekar leiðinlegur ferðahraði. En þetta stendur vonandi til bóta er við komum út í Atlandshafið það er allt svo gott þar. Allavega í norður hluta þess. Þar sem fjörðurinn fagri er. Í dag var höfrunga með okkur um stund. Það er gaman að fylgjast með þeim að leik. Annað hefur vart verið að sjá nema að fjallstoppar Spánar voru rétt í þessu að sýna sig.
Það er búið að vera Tævu veður í dag en Tævuna þurfti að fylla snemma dags til þess að hægt væri að láta hana finna fyrir því eftir kvöldmatinn. Hitinn í hafinu hefur lækkað talsvert og það þætti ekki þægilegt að hafa bara 22° heitt vatn í sundlauginni heima. Það þykir frekar óþægilegt hitastig, líka í Miðjarðarhafinu. En hitinn hækkaði eftir því sem á leið dags og var bara notaleg fyrir strákana að dýfa sér í hana.
Staður 36.07.00 N 004.44.00 W
Hraði 6.6 sm.
Stefna 269°
Hiti 24°
Sjávarhiti 20.2°
Farnar mílur 8671 sm.
Kveðjur til ykkar frá okkur og mikið verður gott að koma heim.
FÞI
3 Athugasemdir »
Sent af admin í Blogg
Það hefur verið smá kaldi í dag en nú höfum við fengið að upplifa lens í fyrsta sinn á þessu heimstími þónokkur straumur er hér og því hefur gangurinn lítið breyst . Báturinn fer bara vel með sig á lensinu. Það búið að dunda sitthvað í dag. Gert var við flautuna því ekki hefði verið hægt að koma heim án þess að geta svarað kveðjunni sem Hornfirðingar eru vanir að kasta á nýtt skip við heimkomu. Þann vegin að nú erum við klárir þrátt fyrir að enn séu bara 11-12 dagar eftir. Sem er ekki svo mikið. Við fengum fréttir af Helgunni í dag en þeir eru ekki enn lagðir af stað og einhverjir dagar í það enn. Megi þeir eiga góða ferð.
Staður 36.47.00 N 000.90.00 A
Hraði 9.8 sm.
Stefna 253°
Hiti 24°
Sjávarhiti 22.3°
Farnar mílur 8420 sm.
Ófarnar mílur 2131sm.
Kveðja
FÞI
2 Athugasemdir »