Það hefur verið smá kaldi í dag en nú höfum við fengið að upplifa lens í fyrsta sinn á þessu heimstími þónokkur straumur er hér og því hefur gangurinn lítið breyst . Báturinn fer bara vel með sig á lensinu. Það búið að dunda sitthvað í dag. Gert var við flautuna því ekki hefði verið hægt að koma heim án þess að geta svarað kveðjunni sem Hornfirðingar eru vanir að kasta á nýtt skip við heimkomu. Þann vegin að nú erum við klárir þrátt fyrir að enn séu bara 11-12 dagar eftir. Sem er ekki svo mikið. Við fengum fréttir af Helgunni í dag en þeir eru ekki enn lagðir af stað og einhverjir dagar í það enn. Megi þeir eiga góða ferð.
Staður 36.47.00 N 000.90.00 A
Hraði 9.8 sm.
Stefna 253°
Hiti 24°
Sjávarhiti 22.3°
Farnar mílur 8420 sm.
Ófarnar mílur 2131sm.
Kveðja
FÞI
|
2 Svôr við “Þá er rúmur sólarhringur eftir í Gíbraltar”
Skilja eftir svar
|
Færslur (RSS)
Jæja strákar á ekkert að koma með eina sögu af fyrra kvöldinu á Möltu, má það kannski ekki? þarf maður bara að bíða og bíða eftir heimkomu ykkar? Erum núna komnir í Færeyskan sjó að fara snara síldina, ekki mikið um makríl á því svæði skilst mér. Eru engar kjaftasögur frá ykkur? einhverjir farnir að renna hýru auga á Jóa eða öfugt, væri gaman að heyra eitthvað alvöru krydd!!!! HAhaa
Kv.Stjáni
Jæja strákar mínir allir sem einn, langaði svo að senda ykkur nokkrar línur, allt gott að frétta að ég best veit ,það er búið að vera töluvert rok í dag og sól örugglega pjúra suðvestan rok . jæja nú styttist í heimkomu og allir verða svo glaðir ad fá menn og pabbana heim ,þad var ein lítil pabbastelpa hjá ömmu í pössun í dag og er hún farin ad telja niður og sagði amma það eru bara 10 dagar þangað til pabbi og þeir komi heim ,hún er orðin spent að hitta pabba sinn og víða orðin tilhlökkun ad fá sína menn heim eftir langa fjarveru . jæja elsku strákar allir sem einn sendi kveðjur og knús og við hlökkum svo til að sjá ykkur ,og gangi ykkur sem allra best á heimleiðing