Hér er hæglætis veður sól og blíða í allan dag en sterkur mótstraumur sem hefur verið að tefja för okkar óþyrmilega. Hraðinn hefur farið niður í 6.2 sm. og það er að mínu mati frekar leiðinlegur ferðahraði. En þetta stendur vonandi til bóta er við komum út í Atlandshafið það er allt svo gott þar. Allavega í norður hluta þess. Þar sem fjörðurinn fagri er. Í dag var höfrunga með okkur um stund. Það er gaman að fylgjast með þeim að leik. Annað hefur vart verið að sjá nema að fjallstoppar Spánar voru rétt í þessu að sýna sig.
Það er búið að vera Tævu veður í dag en Tævuna þurfti að fylla snemma dags til þess að hægt væri að láta hana finna fyrir því eftir kvöldmatinn. Hitinn í hafinu hefur lækkað talsvert og það þætti ekki þægilegt að hafa bara 22° heitt vatn í sundlauginni heima. Það þykir frekar óþægilegt hitastig, líka í Miðjarðarhafinu. En hitinn hækkaði eftir því sem á leið dags og var bara notaleg fyrir strákana að dýfa sér í hana.
Staður 36.07.00 N 004.44.00 W
Hraði 6.6 sm.
Stefna 269°
Hiti 24°
Sjávarhiti 20.2°
Farnar mílur 8671 sm.
Kveðjur til ykkar frá okkur og mikið verður gott að koma heim.
FÞI
Færslur (RSS)
JÁ strákar mínir ,vitum að það það verður gott að koma heim .það er þetta fína veður í dag smá súld og hlýtt og hægur vindur .smá orða villa í gær hjá mér átti að vera gangi ykkur sem best á heimleiðinni .var að skoða hvar þið eruð staðsettir, og það er frábært að hafa þessa síðu til að fá fréttir af ykkur ,takk fyrir það Heiðar minn og Frissi .Bestu kveðjur og knús til ykkar um borð ,og gangi ykkur sem best á heimleiðinni.
Sælir piltar. Gott að vel gengur og er ekki stefnt á 1. júlí í heimahöfn? Mikið er ég nú glöð að þið getið notað Tæwuna til að stynga ykkur í. Gangi ykkur vel
Verið velkomnir á Atlanshaf. Kv jón mall