Þá siglum við í Atlantshafinu rétt fyrir utan Albufeira. Það hefur skánað gangurinn. Meðalhraðinn bara uppá við. Það hafa margir verið að grennslast fyrir um komutíma okkar. Hann er áætlaður 1. júlí ef allt gengur eins og það á að ganga. Nánari tímasetningu er ekki hægt að gefa fyrr en nær dregur. Nú eru eftir 1688 sm. en síðasti sólahringur gekk frekar rólega fyrir sig. Það er smá vinnukaldi í hafi en það truflar okkur ekkert. Hitinn hefur farið lækkandi dag frá degi. Svo kalt var í messanum að kokkur án klæða þurfti að klæðast síðbuxum og bol. Það var hálf skrýtin sjón því hann hefur einungis klæðst naríum allan þennan tíma. Þó ekki þeim sömu.
Kári Söl. Til hamingju með daginn.
Staður 36.44.00 N 008.49.00 W
Hraði 9.4 sm.
Stefna 277°
Hiti 22°
Sjávarhiti 20°
Farnar mílur 8879 sm.
Biðjum að heilsa heim og guð blessi kónginn.
FÞI
Færslur (RSS)
Gangi ykkur vel síðasta spölinn…. Verður ekki synt líka í tævunni á Atlantshafinu??
Sælir. Gott að allt gengur vel. Elsku Friðrik Þór, til hamingju með afmælið á morgun fimmtudaginn 24. júní. Vona að drengirnir baki pönnslur og gefi þér flott að borða. Þú verður að fá að hafa það næs á afmælisdaginn heheh Gangi ykkur vel
´Jæja á morgun er að sjálfsögðu 25. júní og afmælisdagur frumburðarins. Varð fótaskortur á fingrunum heheheh
Blessaðir strákar.
Jæja þá er brottfor ákveðin, förum á föstudag á London og þaðan áfram. Verðum eina nótt í Hong Kong og svo yfir, reiknum með að leggja í hann um svipað leyti og þið verðið heima.Þakka ykkur fyrir bloggið það hefur verið gaman og fróðlegt að fylgjast með ykkur. Verðum með bloggsíðu gegnum gerfihnattasímann. skuliarna.blog.is og E-mail helgare@sjopostur.is
Kveðja Ásgeir, Helgu RE
Ps. bið að heilsa Ingólfi Ásgríms.