Það er blíðu veður og góður gangur. Við þrifum lítillega í dag en sápan sem við fengum á Möltu er óttalegt barnasjampó og vinnu því lítið sem ekkert á drullunni. Þeir þurfa líklega ekki að þrífa bátana sína þarna á Möltu enda ekki svo mikið sem þeir skíta sína báta út. Kannski að Össur hafi fundið þetta út í heimsókn sinni þar um daginn. Blessaður karlinn.
Við nálgumst nú óðfluga landið okkar fagra. Það er komin tilhlökkun í mannskapinn.
Sjonna hlakkar alveg ógurlega til Þjóðakvöldsins hjá kvennakórnum en er þó með smá kvíða fyrir því að hann fái ekki frið með englahárið. Enda búið að auglýsa það vel hversu gott er að handfjatla lubbann. Lubban segi ég og skrifa. Þetta er sá haus sem helst ætti að klippa. En það má víst ekki.
Tævan var brúkuð í dag þó svo að hitinn í henni hafi ekki verið til að hrópa húrra fyrir. Aðeins 19° þegar sett var í hana. Sjonni á metið hvað sundferðir snertir. Hann hefur dýft sér í öll þau höf sem við höfum lagt leið okkar um. Hann fær að launum einn bjór í boði kvennakórsins.

Staður 41.02.00 N 010.04.00 W
Hraði 10.5sm.
Stefna 355°
Hiti 21°
Sjávarhiti 18.8°
Farnar mílur 9158 sm.
Matur: rjómalöguð blómkálsúpa og fyllt brauð.
Kveðja til allra.
FÞI

15 Svôr við “Atlandshafið tekur vel á móti okkur”
  1. Lóa Hrönn segir:

    Góður matur namm. Frissi minn elsku stóri bróðir til hamingju með afmælið á morgun vona að dagurinn verði góður og þú fáir eitthvað gott að borða annað en súpu og brauð :) Vona einnig að þú hafi þroskast helling og fríkkað eitthvað ;) kiss og knús á þig einnig á föður okkar. hafið það gott og góða ferð

  2. Lóa Hrönn segir:

    Góður matur namm. Frissi minn elsku stóri bróðir til hamingju með afmælið á morgun vona að dagurinn verði góður og þú fáir eitthvað gott að borða annað en súpu og brauð :) Vona einnig að þú hafi þroskast helling og fríkkað eitthvað ;) kiss og knús á þig einnig á föður okkar. hafið það gott og góða ferð

  3. Kata segir:

    Innilegar hamingju óskir elsku Frissi minn vona að strákarnir dekri við þig og að kokksi gefi þér eitthvað djúsý gott að borða…:0)veit að Éva þín dekrar við þig þegar þú verður komin heim…

  4. Kata segir:

    Sindrastelpurnar unnu 3-1 fjarðarbyggð..

  5. Sandra Lind segir:

    Elsku Frissi okkar innilega til hamingju með daginn:) mikið hlakkar okkur til að fá ykkur feðga heim þú færð afmælisknús þá en þar til ætla ég nú að byðja ykkur að knúsa hann Frissa okkar frá okkur á Hvannabrautinni:) vonandi eigið góðan dag í dag elskan

  6. Sigurður Jón Ragnarsson segir:

    Ég verð þá líka að byrja eins og hinir..:Dhehe Elsku Frissi minn innilega til hamingju með afmælið…. hugsa að það sé best að þú sjáir sjálfur um matinn heheh :P ef þú ættlar að fá eitthvað almennilegt að borða.. Gangi ykkur sem best.

  7. Ármann smári segir:

    Til hamingju með daginn frissi. og vil bara minna á að það er kaffi á könnuni í BERGEN

  8. Eva segir:

    Elsku Frissi minn til hamingju med afmaelid! Hafdu thad gott í dag, vid hugsum til thín úr hitanum en í dag er alveg sérstaklega heitt á okkur, yfir 30 stiga hiti og allir ad brádna. Allir bidja ad heilsa og ég heyri í htér vid taekifaeri! Ástarkvedjur, Eva.

  9. Kári Sölmundarson segir:

    Til hamingju með afmælið Frissi, mikið er gaman að vera aftur orðinn 29.

  10. Til hamingju með afmælið Frissi og hafðu það sem allra best , bið að heilsa köllunum

    Kv úr úthafinu

  11. Eyrún segir:

    Sælir strákar. Það er gott að öllum líður vel og spenna í gangi, þannig á það að vera. Jæja, lubbinn minn kemur vonandi heim með lubbann :) Er enginn annar sem hlakkar til þjóðakvöldsins? Á ég að trúa því að enginn annar ætli að fara? Hvað um það, Sjonni kemst það er pottþétt. Framundan er mega veðurspá, sumir myndu segja að sumarið væri að koma ef hún gengur eftir, svo kannski eruð þið að koma með góða veðrið með ykkur, ekki slæmt :) Verst ef Sjonni saknar svo tævunnar, þetta er jú nokkuð langur tími sem hann hefur verið með henni. Hlít að geta gert betur ;) Teljum niður dagana með ykkur og til hamingju með daginn Frissi, njótið hans vel. Kv. Eyrún.

  12. Björn Heimir segir:

    Til hamingju með daginn Frissi :)

  13. Ragna segir:

    Til lukku með aldurinn gamli. Ég smelli á þig á þig einum aukalega í næst viku, vona að dagurinn hafi verið tilbreytingar mikill.

  14. Steini mágur segir:

    Til hamingju með daginn Frissi minn biðjum að heilsa ykkur öllum

  15. Sveinbjörn Orri segir:

    Til hamingju með daginn og skipið.Bið að heilsa pabba þínum.

  16.  
Skilja eftir svar