Það hefur verið mikið um veisluhöld í dag. Kokkur í klæðum átti afmæli og haldið var upp á afmæli Sjonna í leiðinni þar sem hann fékk bara gúllas í matinn á sínum degi. En það var meira honum að kenna en öðrum því hann lét ekki rétt yfirvöld vita af deginum fyrr en samdægurs. En þá var kokkurinn búinn að gera ráð fyrir matarföngum þann daginn. Hátíðarhöldin hófust á því að Jói hafði skipti við kokkinn og slóg í brauðtertur með túnfisk-og kræklingasalati og það var etið með góðri lyst. Þá leið ekki á löngu þar til kokkurinn kom með stóra gúllasið (nautafille) og það var kryddað af hjartans list með svörum pipar og látið standa í dulitla stund. Síðan var því hent inn í ofninn góða og hann sá um rest. Þvílík máltíð þó ég segi sjálfur frá. Ég hef ekki talað um það hér, en öll kjötvara var versluð í Taiwan og betra hráefni er vandfundið! Allt svo meyrt og gott. Það hefur ekki klikkað einn einasti kjötbiti. Og ekki eru græjurnar í eldhúsinu til þess að eyðileggja herlegheitin. Og hvað þá kokkurinn!!!!!!!!! Það eru að vísu kannski ekki allir á þessu síðast nefnda.
Það er gaman að vita að þeir Helgu menn eru að komast af stað. Gangi ykkur allt í haginn og góða skemmtun.
Nú segir Maxsea-inn að við séum ca. sólahring á undan okkar áætlun þ.e. að við verðum heima þann 30.júní en það getur margt breyst á þen 4-5 sólahringum sem eftir eru. Það hefur verið ágætis gangur en við siglum nú í Atlandshafinu og það getur verið duttlungafullt og því verður ekki gefinn út tíma alveg strax.
Staður 45.16.00 N 010.44.00 W
Hraði 10.3 sm.
Stefna 355°
Hiti 17°
Sjávarhiti 17.3°
Farnar mílur 9413 sm.
Ófarnar mílur 1148 sm.
Tími 20:04
Kveðja.
FÞI
Færslur (RSS)
Það er bara rífandi gangur á ykkur, verður þetta svona þegar komið er heim:) Kv. Eyrún
Frábært. Hlakka til að sjá ykkur og vonandi gengur allt eins vel og hingað til þannig að þessi áætlun standi. Annars sendi Ingvaldur mail áðan um að hann kæmi heim 30. júli svo ég vona að þið hinir haldi í hanns vo að ekki strjúki meistarinn í mánuð í viðbót:). Gangi ykkur vel