Jæja þá eru rúmir 3 sólahringar eftir. Það hefur gengið mjög vel síðustu sólahringa. Dagurinn hefur farið í að skrúbba skipið með Möltu sjampói. Það gekk nú svona og svona. En eitthvað náðist nú af þó svo að það hefði mátt vera meiri árangur. Það hefði þurft að bletta aðeins en það verður beðið með það þar til að Jón Þorbjörn kemur um borð. Hann er einn besti málari sem um getur, enda á hann ættir til. Það hefur verið dandalablíða í dag og strauma hafa verið okkur hliðhollir. Höfum varla séð undir 10 mílna ferð síðasta sólahringinn. Næstu dagar fara í það að þrífa Tævuna en hún verður til brúks fyrir hvern sem er þegar við komum. Það fá allir að fara í hana nema Stjáni Hauks. og þeir sem ekki renna fingrum sínum í gegnum lubbann á Sjonna. Hann er yfirsundlaugarvörður og gott ef hann verði ekki ráðinn í Sundlaug Hafnar þegar sjómannsferlinum líkur. En það eru væntanlega nokkur ár í það svo þeir í sundlauginni heima geta verið rólegir um sinn.
Hér gerðust undur og stórmerki í dag. Við náðum gervihnettinum inn og nú er slegist um það hvaða rás á að horfa á. Jói vinnur alla þá bardaga og horfir nú stíft á minningarþætti um Mikhael Jackson. Svo dolfallinn er hann að hann festir varla svefn.
Takk fyrir allar kveðjurnar í gær. Það er bara notalegt að fá kveðjur frá ykkur. Takk takk.
Staður 49.23.00 N 011.17.00 W
Hraði 11.1 sm.
Stefna 354°
Hiti 19°
Sjávarhiti 15.6°
Farnar mílur 9662 sm.
Ófarnar mílur 900 sm.
Kveðja.
FÞI
Færslur (RSS)
Ég hefði meira trú á því að faðir minn væri í því að horfa á þessa þætti því við feðgar fórum á tónleika með þessum snilling útá Spáni 1988. Ég var ekki alveg á því á þeim tíma þar sem ég var 14 ára og hélt meira uppá þyngri bönd en sá gamli sagði að svona mætti maður ekki missa af. Ég þakka mikið fyrir það núna þar sem fáir hafa séð snillinginn á sviði eftir að sú tónleikaför endaði. Til að halda sögustaðreyndum til haga voru þarna einnig Guðmundur H. Gunnarsson og Lúlli Klemma.
Verið mikið velkomnir á klakkann eftir þetta ævintýri