Þá er það ákveðið. Við verðum í heimahöfn þann 30. júní klukkan 12 á hádegi. Það stendur mikið til . Allir bátar fyrirtækisins ætla að fylgja okkur inn. Við reiknum með að tollskoðun taki tvær klukkustundir og þar á eftir verður báturinn til sýnis. Einhver önnur dagskrá verður en það verður auglýst síðar ef það er ekki búið nú þegar. Við vonumst til að sjá sem flesta við heimkomuna.
Það hefur verið frekar rólegur dagur hjá okkur í dag. Tíu máfar litu við og náðu að drulla aðeins á nýþrifinn bátinn. Það kostar það að taka verður upp Möltu sjampóið aftur. Það er kominn hellings spenna í okkur. Það verður ekki lítið gaman að hitta fjölskylduna eftir 49 daga í hafi og eina 8 daga þar á undan í Taiwan. Við erum satt best að segja að farast úr spenningi.
Það eru alltaf einhver afmæli í minn fjölskyldu á þessum tíma. Nú á litla prinsessan mín hún Emma afmæli í dag og þar sem ég á ekki vona á því að heyra í henni í dag vegna þess að hún er að koma frá Spáni langar mig til að koma til hennar ástarkveðju frá pabba. Afi biður líka fyrir kveðju til þín.

Staður 53.36.00 N 012.05.00 W
Hraði 11 sm.
Stefna 353°
Hiti 18°
Sjávarhiti 15.9°
Farnar mílur 9917sm.
Ófarnar mílur 643 sm.
Tími 19:40
Kveðja.
FÞI

Eitt svar við “Heimkoma”
  1. Lóa Hrönn segir:

    Til hamingju með litlu títlu :) leitt að missa af svaka party þegar þið komið heim en ég knúsa ykkur á föstudag hlakka til að sjá ykkur

  2.  
Skilja eftir svar