Þetta er bara allt að hafast. Óbúlegt hvað tíminn flýgur. Dagurinn í dag fór í þrif eins og síðustu dagar hafa gert. Ekki það að skipið hafi verið haugdrullugt heldur að það er bara svo gaman að þrífa. Jói hefur verið að dunda við að búa til myndasýningu fyrir heimkomuna og aldrei þessu vant tókst honum ekki að klúðra myndatilfærslu fyrir Sjonna kallinum. En eins og áður hefur komið fram þá hefur hann tínt myndum áður fyrir Lónmanninum. Við mikla hrifningu viðkomandi, eða ekki.
Hér hefur Atlandshafið tekið einkarvel á móti okkur. Við höfum haft meðbyr nær alla leið frá því í Gíbraltarsundi. Gott veður þó svo að þokan hafi rétt í þessu skollið á okkur af miklum þunga nú rétt í þessu. Það er bara notalegt að sjá þokuna aftur eftir þessar sólríku stundir sem við höfum upplifað síðustu daga og vikur.
Magndís Lóa! Til hamingju með afmælið.

Staður 57.52.00 N – 013.08.00 W
Hraði 10.9 sm.
Stefna 252°
Hiti 14°
Sjávarhiti 13.5°
Farnar mílur 10.175 sm.
Ófarnar mílur 385 sm. Sem er bara ekki neitt!
Tími 19.40
Kveðja.
FÞI

Eitt svar við “Einn dagur og 11 klukkustundir og 14.5 mínúta”
  1. Eyrún segir:

    Já takk fyrir spennan er að verða óbærileg :) ekki satt. Við verðum á bryggjunni að taka á móti Sjonna og ykkur öllum ásamt fjöldanum öllum býst ég við. Það er ekki á hverjum degi sem maður heimtir betri helminginn úr heimssiglingu, hvað þá frá svæðum sem eru ST’ORHÆTTUEG :) Hlökkum til að sjá ykkur og sérstaklega þig Sjonni :) KV. Eyrún og co.

  2.  
Skilja eftir svar