Nýsmíðin Þórir SF-77 kemur til heimahafnar þriðjudaginn 30. júní. Búist er við Þóri um hádegisbilið eftir 6 vikna siglingu frá Taiwan.
Í tilefni af heimkomu Þóris munu skip fyrirtækisins taka á móti honum fyrir utan Hornafjarðarós og fylgja honum síðasta spölinn inn til hafnar.
Við fögnum þessum gleðiáfanga í endurnýjun skipastóls fyrirtækisins með því að hafa skip okkar opin til sýnis fyrir almenning eftir kl. 15:00. Boðið verður upp á léttar veitingar og fiskrétti úr framleiðslu okkar frá kl. 15:00 – 18:00 á Miklagarðsbryggju.
Við vonumst til að sem flestir sjái sér fært að mæta til að gleðjast með okkur þennan dag.
|
Eitt svar við “Heimkoma Þóris SF-77”
Skilja eftir svar
|
Færslur (RSS)
Góðann dag piltar. Af þeim gamla er allt gott að frétta, vorum að landa 40 kör humar og 8-9 tonn fiskur vorum í Hornó.
Hlökkum til að sjá ykkur .Bestu kveðjur Áhöfnin ÞÓRIR SF 77 (177).