Þá er þessi ferð að enda. Þetta er búið að vera mjög áhugaverð og skemmtileg ferð. Margir nýir hlutir hafa fyrir augu borið og margt skrítið. Þetta er lífsreynsla sem við hefðum ekki viljað missa af. Allt hefur gengið eins og í sögu og sagan ætlar að enda með svakalegu húllumhæi á Miklagarðsbryggjunni á morgun. Það er mikil tilhlökkun að hitta fjölskyldurnar okkar. Nú er búið að slá af en áætlaður komutími er um hádegisbil.
Við viljum koma þökkum til þeirra sem hafa aðstoðað okkur í ferðinni. En þeir eru fjölmargir og verða þeir ekki taldir upp hér nema að við verðum að þakka Garðari Garðasyni sérstaklega fyrir hans framlag.
Nú er komið að leiðarlokum og það hefur verið gaman að lesa það sem þið hafið skrifa í kommentin. Þess var alltaf beðið með mikilli eftirvæntingu að fá bréfið með kommentunum.
Heiðar takk kærlega fyrir að hjálpa okkur með heimasíðuna. Þú ert besti vefþjónn í heimi.
Staður 62.09.00 N 014.23.00 W
Hraði 10.6 sm.
Stefna 348°
Hiti 17°
Sjávarhiti 12.4°
Farnar mílur 10.437 sm.
Ófarnar mílur 126 sm.
Takk fyrir okkur og vonandi höfðuð þið jafn gaman að þessu og við.
Kveðja
Friðrik Þór Ingvaldsson
Færslur (RSS)
Gaman að fá ykkur heim eftir þessa útivist ykkar. Mæti með einhvern slatta af barnabörnum til að skoða útlagann afa þeirra. Gangi ykkur vel á loka sprettinum
Verið þið hjartanlega velkomnir í fjörðinn fagra það verður yndislegt fyrir ykkur að komast heim til fjölskyldna ykkar.. gangi ykkur vel með rest..:0))
Bara eins og 17. júní á Höfn. Velkomnir heim.
Það hefur verið gaman og fróðlegt að geta fylgst með ykkur svona í gegnum tölvuna, enda hefur pabbi (Jón Hilmar) ekki linnt látum, alltaf að biðja mig um að fara á netið og kíkja á hvert þið voruð komnir í það skiptið og stundum voru pislarnir prentaðir út og farið með þá til hans.
Takk fyrir “bloggið”.
Velkomnir heim og til hamingju skinney/þinganes með þessa nýju bátanna þ.e skinney sf 20 og þórir sf 77 og vonandi farnast þeim vel hjá ykkur. kveðja frá króknum.
Til hamingju með skipið. flottur var einu sinni með ikkur á gamla Þórir á rækju frá esk