Fyrra kvöldið skoðuðum við lífið og skemmtum okkur lítilega. Dagurinn þar á eftir fór í að taka olíu og vistir. Eftir hádegið var rölt í bæinn og mannlífið skoðað og einhverjir smáhlutir verslaðir. Það er þó varla hægt að versla mikið á evrusvæðinu þar sem hún er í hæstu hæðum og manni skilst það á heimamönnum á Möltu að verðlag sé allt á uppleið. Það er víst ekki bara á landinu fagra sem allt er á uppleið þ.e. verðlagið. Össur Skarp. var þarna nokkrum dögum á undan okkur. Hann var víst í leit að góðum leiðarvísir inn í Evrópusambandið. Ekki held ég að þetta sé rétti staðurinn þrátt fyrir sér samninga um sjávarútvegsmálin. Þarna er ekki hægt að leita samlíkingar við íslenskan sjávarútveg. Það er allavegana á hreinu. Í þessari borg er u um 30 fiskiskip sem gerð eru út allt árið og eru að slíta upp u.þ.b. sama afla og meðal stór togari heima. Þarna eru engar eiginlegar auðlindir ekki eins og það sem við eigum. Ferðamanna iðnaðurinn er þeirra auðlind og eins eiga þeir eina söngspíru sem hefur sungið vel flest evróvísion lög þeirra Maltverja, en fátt annað er hægt að telja nema þá þá örfáu fisk titti sem þeir kroppa upp á sínu örsmáa landgrunni.
Það var skemmtileg aðkoman að höfninni. Höfnina umliggur gamall Máravirki sem varið hefur höfnina á þeirra tímum. Borgin er ferkar gömul og sagt er að þar megi finna byggingar allt frá því um kristburð. Þarna er að sjá fallegar kirkju og fleiri byggingar sem þjónað hafa þessar þjóð og öðrum um langan tíma. Bretar réðu ríkjum í talsverðan tíma og enn ber þess merki. T.d eru öll götuheiti eru á ensku og fleiri ensk áhrif eru þar að finna.

Staður 37.18.00 N 004.52.00 A
Hraði 10.3 sm.
Stefna 262°
Hiti 25°
Sjávarhiti 23.7°
Tími 20:18
Farnar mílur 8190 sm.
Við biðjum að heilsa öllum heima og viljum láta ykkur vita af því að það er allt í lagi að setja inn komment eða bara senda okkur smá kveðju með einhverjum smá kjaftasögum áhangandi!
FÞI

Comments Engar athugasemdir »

Það er ekki mikið að frétta en flott veður. Sól og spegilsléttur sjór. Það hefur verið talsvert dýralíf hér um borð. Tvær dúfur halda til á brúarþakinu og eitt og eitt fiðrildi hefur látið sjá sig. Og að sjálfsögðu eru hel…. móskítóflugurnar alveg vitlausar í okkur. Þetta eru pattaralegustu móskítóflugur að verða enda hafa þær lifað hér í vellystingum og haft af nógu að taka.

Staður 37.29.00 N 011.03.00 A
Hraði 10 sm.
Stefna 282°
Hiti 31°
Sjávarhiti 23.6°
Farnar mílur 7893 sm.

Biðjum vel að heilsa heim.
FÞI

Comments 4 Athugasemdir »

Þá erum við búnir að heimsækja Möltu. Þetta var bara gott. Afslöppun og rólegheit. Þetta var frekar róleg heimsókn. Tókum nokkra gin í tonic og fáeina bjóra með. Þetta var bara gaman og ekki skemmdi fyrir að við hittum þá Birgi og Ketil á Eyborginni. Þeir voru okkar hjálparhellur á eyjunni og höfðu allt fyrir okkur að segja og gera. Það var alveg ótrúlega gott að hitta þá. Góðir karlar þar á ferð. Takk fyrir það sem þið gerðuð fyrir okkur félagar og verið velkomnir á fjöðinn fagra, þar verður tekið vel á móti ykkur. Við lögðum í hann kl. 18.00 í kvöld og reiknum með að verða við Gíbraltar eftir um fjóra daga.

Staður 36.14.00 N 13.59.00 A
Hraði 1ö.1 sm.
Stefna 299°
Hiti 27°
Sjávarhiti 23.3°
Farnar mílur 7734 sm.

Farið þið vel með ykkur og guð blessi kónginn. Eins og var sagt í leikriti þeirra bræðra.
FÞI

Comments Engar athugasemdir »

Þá erum við komnir til Möltu. Við ætlum að stoppa hér í tvo daga. vorum bara að klára að binda og tollurinn og fleiri aðilar eru komnir um borð. Það er heldur betra yfirbragð á öllu hér. Engar sníkjur og allt gengur eins og hjá siðuðu fólki. Við ætlum að kíkja á mannlífið á eftir og á morgun fáum við vistir og olíu.
Eyrún! Við erum allir búnir að strjúka Sjonna um hausinn en fundum ekki fyrir bein hvötum sem þú varst að ýja að. Þrátt fyrir englahárið fallega. Skrýtið ekki satt.

Staður 35.53.00 N- 014.30.00 A
Farnar sjómílur 7697sm.
Sjávarhiti 24° og 3 faðma dýpi.
Kveðja til allra frá okkur.
FÞI

Comments 4 Athugasemdir »

Það eru laumufarþegar um borð! Hellingur af Egyptum sem eru í flugulíki. Þetta er bölvaður óþverri sem er í því að naga okkur alla. Ekki það að sé ekki af nógu að taka heldur eru bitin frá þeim frekar pirrandi og kláði mikill.
Stór tjón varð í gærkveldi. til stóð að flytja myndir af myndavélinni hans Sjonna og vildi ekki betur til en að hluti
þeirra glataðist og það sem verra var betri hlutinn, ekki verður það aftur tekið en umrætt hér á tímabili að snúa við til að ná myndefninu aftur!
Það hefur ekki dregið til sérstakra tíðinda í dag þó var Tævan látin finna fyrir því en það hafa ekki margir dagar verið upp á síðkastið sem í hana er fært að stíga fæti hvað þá að fara allur ofan í. Það þarf frekar litla hreyfingu til að öldugangurinn í henni kaffæri ekki sundgesti. Þeir Jói og Sjonni höfðu það á orði að heldur kalt væri í Miðjarðarhafinu og litlar líkur á að sett yrði aftur í Tævuna. Sjonni er samt uppfullur af því að taka smá sundsprett er í Atlantshafið kemur. Þá hefur hann baðað sig í öllum þeim höfum sem siglt hefur verið í á þessu ferðalagi.
Við viljum senda smá kveðju til Tóta í Taiwan og biðjum fyrir kveðju til Poppy og allra hinna sem við höfðum kynni af í því landi. Gott og hjálpsamt fólk þar.
þess má til gamans geta að hér var stillt og gott veður í dag og logn á köflum.

Staður 35.08.00 N – 018.55.00 A
Hraði 10.3 sm.
Stefna 286°
Hiti 22°
Sjávarhiti 23.3°
Hiti í vél 43°
Hiti í brú 30°
Tími 20:45
Farnar mílur 7476 sm.
Góðar kveðjur heim.
FÞI og JHD

Comments 7 Athugasemdir »

Æjæja þá hefur einn hausinn enn verð snoðaður eða allt að því. Ingi fór undir rakvélina hjá góða Risanum. Þegar Ingi spurði hvort það væri ekki í lagi að græja þetta innandyra sagði Risinn að það væri bara viðbjóðslegt. Þá sárnaði Inga og taldi sitt hár ekkert viðbjóðslegt, en engu að síður fór klippingin fram utandyra. Nú er bara spurning hvort Sjonni fái leyfi. Hann bíður spenntur eftir því að leggjast undir tækin hjá Risanum. Eyja, má Sjonni ekki láta klippa efstu stillingu (1.5 cm)? Það eru nú þrjár vikur þar til við komum heim. Plís segir Sjonni.
Það var mörgu leyti gaman að siglingunni upp Súez. Þrátt fyrir að hafa þurft að vakta samferðamenn okkar hverja einustu mínútu. Útsýnið var all sérstakt. Á vesturbakkanum var talsverða byggð að sjá og eitthvað af gróðri. En austurbakkinn var frekar líflaus og ósjálegur í alla staði. Ein og ein vaktstöð sem ætluð er til eftirlits með umferðinni í skurðinum. Í þessum varðstöðvum voru menn undir vopnum og er við sigldum fram hjá einni þeirra tókum við eftir því að að þar var byssukjaftur sem fylgdi okkur á meðan við vorum innan færis. Ég rauk út til að athuga hvort ekki væri réttur fáni á skipinu þ.e. sá Íslenski en ekki Landsbanka fáninn.
Í eitthvert skiptið sem ég fór út heyrði ég mikinn söng. Ég lagði betur við hlustir og leit vel í kring um mig sá ég að nokkrar moskur voru við vesturbakkann. Þetta var gaman að sjá. Tvær brýr eru yfir skurðinn önnur fyrir bíla og hin fyrir lestar. Það er í raun furðulegt að ekki skulu vera fleiri brýr á um 100 km. löngum skurðinum. Það voru þó nokkrar ferjur til manna- og bílaflutninga staðsettar við helstu byggðarkjarnana.
Í dag hefur verið ágætis veður smá kaldi og hitinn alltaf á niðurleið. Við höfum þurft að minnka kælinguna í messa og íbúðum. En það er skrítið að manni finnist vera kalt þegar hitastigið er komið niður í 24-28°.
Nú styttist óðum í Möltu. Við lendum þar á þriðjudagskvöldið ef allt gengur að óskum. Þar verður tekin olía og eitthvað af vistum. Eins á að líta aðeins á mannlífið þar, en sú pása verður kærkomin. Við byrjuðum 34. dag siglingarinnar á hádegi í dag og það er nú ekkert smá.
Smári minn, við sáum á kommentinu hjá þér að þú saknar okkar ekkert! Bara blaðanna sem kallinn kemur með um borð. Hann bað um að það kæmi fram að búið er að segja upp Mogganum og kokkurinn ætlar að sjá til þess að aðrir sneplar verði frekar að eldiviði en að þeir komist í þínar hendur! Og svaraðu þessu endilega.

Staður 34.04.00 N – 023.39.00 A
Hraði 10.1 sm.
Stefna 286°
Hiti 24°
Sjávarhiti 23.4°
Tími 20.30
Farnar mílur 7233 sm.
Bless bless elskurnar og hafið það gott í nýrri vinnuviku.
FÞI

Comments 3 Athugasemdir »

Það var ekkert talað um lóðsana í gær. En þeir eru engu betri en hin sníkjudýrin. Sá fyrsti kom um borð til að leiðbeina okkur að legustæðinu. Hann byrjaði á því að kvarta áður en hann var kominn um borð. Leiðarinn, en það er stigi settur er utan á skipið var ekki að hans skapi og honum gekk frekar ílla að komast upp hann. Það var reyndar ekki fyrir það að eitthvað væri að leiðaranum heldur var karldurgurinn bara gamall og stirður. Þegar hann var kominn um borð og við vorum alveg að nálgast legustaðinn byrjað hann að kvabba. Hann þurfti sígarettur og pening. Og til að hafa hann góðan var hann látin hafa 70 dollara og tvö karton. Það var ekki nóg að hans mati. Hann vildi meiri pening en því miður fyrir hann þá fékk hann ekki meira. Konni sagði honum að þetta væri allur sá peningur sem hann ætti og með það fór hann. Sá næsti sem kom um borð átti að fylgja okkur vel áleiðis inn skurðinn. Og það var eins með hann. Það var vælt og kjökrað til skiptis þar til að tvo karton lágu í hans hendi. Þá kom sá þriðji hann gerði sig breiðan og hótaði því að gera mál úr því að einungis væri gps áttaviti en ekki gíró áttaviti. Hann fór fram á að fá fimm karton og áttavitamálið yrði þar með úr sögunni. Hann fékk sín fimm og stóð við sitt. En þess má geta að gps áttavit er jafn löglegur áttaviti og honum var bent á það. En maður veit ekki hvar maður hefur þetta lið og því er betra að gefa eftir og borga uppsettar mútur. Þegar vinurinn fór frá borð glaður og ánægður með sinn skerf kom lóðsbátur að sækja hann. Þá byrjaði betlið enn einu sinni. Eru til sígarettur? Nei var svarið hjá risanum góða (Jóa) og þá var spurðu þeir aftur og aftur og aftur og aftur. En alltaf var svarið það sama NEI og þeim bent á að lóðsinn væri með rettur en þeir voru að okkur virtist algerlega ósnertanlegir og hæstir í goggunar röðinni á þessum slóðum. Þá var byrjað að væla um eitthvað að drekka. Þá var náð í einn kókkassa og honum hent til þeirra. Við vorum að vísu ekki að láta þá vita að í hluta kassans voru sprungnar dósir og fengurinn því ekki jafn góður og þeir töldu.
Þetta var sagan af grísunum þremur og vinum þeirra.
Það var ekki lítill sóðaskapurinn af ferðafélöum okkar í gegnum skurðinn. Það var sem að þeir kynnu ekki að stýra litla manninum þegar á klósettið var komið. Þegar ég leit inn á klósettið sem þeir höfðu til afnota var allt út migið. Það var sem þúsund sprellar hefðu verið þarna að verki. En þeir voru heldur færri. Að vísu komst ég að því að þessir gæjar eru svo þrifalegir með litla manninn að þeir skola greyið alltaf eftir hverja ferð á klósettið beint af stút úr vatnsflöskunum. Það er verulega þrifalegt fyrir þá en ekki okkur.
Það voru ekki fáar eiginhandaráritanirnar sem þeir Sjonni og Konni gáfu í þessari ferð. Ég er viss um að Bono í U2 hafi aldei gefið svona margar áritanir á jafn stuttum tíma. Það virðist sem að allt gangi út á pappír og sníkjur á þessu svæði.
Það var mikill léttir hjá mannskapnum þegar sá síðasti fór frá borði. Menn voru langþreyttir á þessu áreiti og stöðugu betli þessara manna og barnapössun allan daginn þvi þetta lið var sko ekki skilið eftir neinstaðar efttirlitslaust og var því kærkomið að losna við þetta lið.

Staður 32.52.00 N – 028.15.00 A
Hraði 9.4 sm.
Stefna 290°
HIti 26°
Sjávarhiti 24.4°
Tími 19:40
Farnar mílur 6991sm.
Elskum ykkur öll og góðar kveðjur heim.
FÞI

Comments 6 Athugasemdir »

Sæl og bessuð öll. Þetta er búinn að vera meiri sólarhringurinn. Það er mikið búið að ganga á og lauslega eru báta komur að skipinu okkar áætlaðar 17! Þetta er eins og ég lýsti í gær allskonar lið sem hefur einfaldega atvinnu af því að pirra menn og tekst bara nokkuð vel upp með það. Báturinn sem við hífðum um borð átti að koma kl. 22:00 í gærkveldi kom þegar klukkan var að ganga 01:30 og með honum voru 3 karlar sem áttu að hafa einhverjum mikilvægum hlutverkum að gegna. Ekki veit ég hverjum, en þeir áttu bara að vera til taks ef eitthvað kæmi upp á. Eins kom líka rafvirki stuttu áður en hann var ekki frá sömu aðilum. Þetta lið tók undir sig borðsalinn og lá þar sofandi 1/3 hluta leiðarinnar. Það tók ekki betra við þegar þeir vöknuðu. Þá ruku þeir út á millidekk og byrjuðu taka upp úr töskum og pokum helling af söluvarningi. Sum sé það var opnaður sölubás að sömu gæðum og þann sem Grimmi varð alveg brjálaður yfir daginn áður. En nú var eiginlega ekkert hægt annað en að skoða og vera yfirmáta kurteis og hafna allri verslun á þessum stað. Enda veit Grimmi það að ekki er borgaður vaskur af þessari sölu og því er þessi verslun með öllu ólögleg. Þá kom að því að rafvirkinn vaknaði. Og þar var sama sagan hann var ekki lengi til að kippa upp úr sinni tösku og skella upp á borð. Það voru ýmsar kúnstir sem reyndar voru og sumar heppnuðust hjá honum þar sem einhver verslun fór fram og notaðir voru Taiwan dollarar til kaupanna. Specilal price for you my friend heyrðis ansi oft. Ég sé fyrir mér Kidda Óskars. komandi um borð þegar við komum heim reynandi að selja okkur eitthvað frumlegt og gott.
Þetta gekk þrátt fyrir allt ágætlega svona fyrstu klukkustundirnar en þegar um klukkutími var eftir af ferðinni í gegnum Súez byrjaði stuðið. Þá færðu þessir annars kurteisu piltar sig upp á næsta level. Það level kallast sníkja! Og það er bara skemmtilegt! Nú fór sami sikusinn í gang og fyrr þennan sólarhringinn. Áttu ekki að reykja? Sérðu þessa skó sem ég er í? Ég sá skó þarna niðri sem passa mér . Áttu vín? Áttu ekki eitthvað handa okkur? En alltaf var svarið nei og aftur nei. En það dugði skammt. Það var ekki hætt fyrr en einhverjar mútur yrðu greiddar. Og á endanum voru þessi aðilar látnir hafa tvö karton af rettum. En þá byrjaði vællinn. Er þetta bara Malboro. Þetta er ekki nógu gott. Við vorum búnir að átta okkur á því að það voru áróðurs myndirnar sem fóru svona fyrir brjóstið á þessum greyjum. Retturnar eru ekki eins góð söluvara með þessum viðvörunum. Myndirnar eru líka fekar sóðalegar. Einn þeirra horfði á pakkana með mikilli vanþóknun og það fussaði í honum. Þá þykknaði yfir sumum (Grimma)og honum var bent á að það værir ekkert mál að taka múturnar til baka. Þá snéri vinurinn sér frá og málið var útrætt. Þeir geta meira að segja verið óánægðir með það sem að þeim er rétt. Þetta er bara ótrúlegt hvernig menn geta hagað sér. Það er hægt að halda áfram endalausum sögum af þessu ferðalagi en einhver staða verður að láta staðar numið og það er hér . Kannski kemur meira síðar en hver veit. Við höfum ekki tekið það saman hvað fór af rettum,kaffi , kóki og öðru, en það er talsvert þó svo að frekar vel hafi verið haldið á spöðunum. Það er ekki öfundsvert að standa í þessu og það er mikill léttir að vera kominn út úr þessu ati.. Næsti viðkomustaður er Malta og Maltverja er gott heim að sækja. Við bregðum okkur kannski á karioke bar og kennum þeim að syngja evróvísion lög eð eitthvað annað. Það skýrist seinna.
Nú færumst við heldur nær ykkur í tíma því í tilefni dagsins veittum við okkur þann munað að færa klukkuna til um 1 klst. Það er því tveggja tíma munur á okkur núna.

Staður 31.44.00 N- 032.00.00 A
Hraði 9.4 sm.
Stefna310°
Hiti 27°
Sjávarhiti 24.7°
Tími 21.45
Farnar mílur 6788 sm.
Biðjum að heilsa öllum heima.
FÞI

Comments 3 Athugasemdir »

Það er nú meiri staðurinn. Hér vorum við lentir kl.12 í dag og allur dagurinn er búinn að fara í eitthvert tómt pappírskjaftæði. Hingað hafa komið fjöldinn allur af mönnum, flestir þurfa að fá einhverja pappíra útfyllta og síðan koma þessar frómu setningar. Hvað áttu handa mér, hvar eru gjafirnar mínar, áttu ekki rettur handa mér og félögunum, og er þetta bara Marlboro þá þarf ég að fá meira í það minnst eitt í viðbót. Má ég eiga þetta og má ég eiga hitt. Svona má lengi telja. Dagurinn byrjaði á því að hingað komu 5 kallar á báti. Tveir af þeim komust um borð og við töldum víst að þarna færi umboðsmaðurinn sem ætlaði að vera með fyrstu mönnum um borð. Það reyndist hins vegar ekki vera. Þetta voru sölumenn sem vildu opna sölubás á lestarlúgunni. Þegar það kom í ljós var þeim umsvifalaust vísað frá borði. En ekki gáfust þeir upp. Það tók okkur u.þ.b. tuttugu mín. að koma þeim frá borði. Það var ekki fyrr en að Grimmi (kokkurinn) setti í brýnnar og æsti sig hæfilega að honum fannst að þeir fóru frá borði og yfir í sinn bát. En sagan er ekki sögð. Þegar þeir voru loksins komnir yfir í sinn ljóta bát byrjuðu þeir á því að hengja sig fasta við okkur og rifu upp út kössum og pokum. Það var sem sagt búið að opna sölubásinn. Þetta voru styttur og alls konar skrautmunir sem voru bara nokkur ásjálegir. En Grimmi var enn brúnaþungur og vísaði þeim margoft frá bátnum og að lokum hurfu þeir á braut. Drullusvektir yfir viðskiptunum við þessa góðu Íslendinga.
Þetta er búinn að vera annasamur dagur. Tókum olíu en það vorur eftir u.þ.b 4000 l svo ekki var vanþörf á að bæta aðeins við forðann. Við eigum eftir að fá eina heimsókn til okkar en það eru bátakarlar sem fylgja okkur í gegnum skurðinn.

Staður 29.56.65N – 032.32.95 A
Við liggum hér við akkeri og það er farið að kvölda.
Biðjum voðalega vel að heilsa heim og verið minnug þess að kerfið heima er bara ágætt. Það er annað en í þessum heimshluta.
FÞI

Comments 6 Athugasemdir »

Nú eru við með Egyptaland á bæði borð. Siglum hér fram hjá hverjum olíuborpallinum á fætur öðrum. Það er hæglætis veður og loksins farið að kólna svolítið í það minnsta yfir nóttina og sjávarhiti er á hraðri niðurleið.
Það er alveg makalaust að hlusta á rás 16 á þessu hafsvæði. Hér logar allt í kjaftagangi og jafnvel eru heilu tónleikarnir haldnir. Þetta gerist aðallega á kvöldin þegar Flipparnir eru á vakt. Þetta byrjar með því að einhver byrjar á því að syngja eða blístra eitthvert undur fallegt lag og síðan kemur gagngrínin og einhver kallar Fhilippean monki og þá verður allt vitlaust. Þessa rás er ekki með nokkru móti hægt að kalla öryggisrás.
Við verðum við op Súezskurðar á hádegi á morgun. Þar stendur til að taka olíu og halda svo inn í miðjarðarhaf. Sú ferð hefst þó ekki fyrr en næsta morgun. Við eigum að halda af stað einhvern tímann á milli 9 og 11:30. Þetta skýrist allt von bráðar.

Staður 27.54.00 N- 033.41.00 A
Hraði 9.2 sm.
Stefna 300°
Hiti 27°
Sjávarhiti 24.9°
Farnar mílur 6525 sm.
Tími 20:05 LT

Biðjum að heilsa okkar fólki heima og líka öllum þeim sem langar að þekkja okkur.
FÞI

Comments 3 Athugasemdir »